Skilmálar notenda heimasíðunnar skiptibokamarkadur.is.
- Síðan er einungis vettvangur fyrir notendur síðunnar til að koma á viðskiptum við aðra notendur en er ekki aðila að neinum þeim viðskiptum sem eiga sér stað eftir samband kemst á milli kaupenda og seljenda. Engin þóknun er tekin af almennum notendum síðunnar, þ.e. einstaklingum.
- Þar sem skiptibokamarkadur.is er einungis auglýsingaþjónusta, ábyrgjast fyrirsvarmenn hennar hvorki tilvist, framboð né ástand þeirra bóka sem notendur auglýsa til sölu.
- Öll verð sem gefin eru upp á síðunni eru þau sem notendur hafa ákveðið sjálfir. Skiptibokamarkadur.is ber enga ábyrgð á þeim upplýsingum sem koma fram frá viðkomandi notendum.
- Skiptibokamarkadur.is ábyrgist ekki að þær bækur sem skráðar eru í viðkomandi flokka séu nauðsynlegar fyrir viðkomandi fög. Skiptibokamarkadur.is mælir með því að notendur hafi samband við þá námsstofnun sem þeir tilheyra til að fá bókalista fyrir viðkomandi fög.
- Vefsíðan skiptibokamarkadur.is, netforrit, vinnsluaðferðir og notendaviðmót síðunnar eru vernduð af íslenskum og erlendum lögum og reglum um hugverkaréttindi og einkaleyfi, þar með talið af höfundalögum nr. 73/1972.
- Skiptibokamarkadur.is áskilur sér rétt til að senda notendum síðunnar fréttabréf að hámarki einu sinni í mánuði til að minna notendur á þjónustu síðunnar og til að láta notendur vita ef samstarfsaðilar síðunnar bjóða notendum upp á sérstök tilboð. Fréttabréfin innihalda tengil þar sem hægt er að afskrá sig af póstlistanum fyrir þá sem það kjósa.
- Skiptibokamarkadur.is mun ekki undir neinum almennum kringumstæðum birta upplýsingar um einstaka notendur eða veita þriðja aðila upplýsingar um notendur, nema gegn dómsúrskurði.
- Skiptibokamarkadur.is er heimilt að birta auglýsendum tölfræðilegar upplýsingar er varða síðuna og fyrirsvarsmenn síðunnar áskilja sér einnig rétt til að nota slíkar upplýsingar til kynningar á síðunni. Hins vegar eru þessar upplýsingar aldrei birtar á þann hátt að hægt sé að auðkenna einstaka notendur. Sem dæmi gætu þessar tölfræðilegu upplýsingar verið notaðar til að kynna vinsældir síðunnar.
- Ef upp koma mál sem brjóta í bága við lög, t.d. brot á friðhelgi einkalífs eða meiðyrðamál, áskilur skiptibokamarkadur.is sér fullan rétt til að gefa upp rétthafa á bakvið það notandanafn sem um ræðir. Einnig áskilur skiptibokamarkadur.is sér rétt til að veita yfirvöldum þær upplýsingar sem kunna að vera málinu viðkomandi.
- Notkun, sem brýtur í bága við lög eða notkunarskilmála, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.
- Verði tilkynnt að notandi stundi viðskipti með þýfi á skiptibokamarkadur.is verður aðgangi viðkomandi tafarlaust lokað, allar auglýsingar á hans vegum teknir af skrá og málið sent lögreglu.
- Gerist einhver brotlegur við reglur skiptibokamarkadur.is eða landslög þá áskilja fyrirsvarsmenn síðunnar sér rétt til að loka fyrir aðgang viðkomandi að síðunni fyrirvaralaust. Slík brot munu einnig verða tilkynnt lögreglu. Skiptibokamarkadur.is áskilur sér einnig rétt á að loka fyrir aðgang að síðunnii sem hefur verið ónotaður lengi.
- Öll ágreiningsmál sem kunna að koma upp í tengslum við síðuna verða rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Leiðbeiningar Bakhjarlar Um okkur Auglýsingar Skilmálar Gleymt lykilorð?
©2012 skiptibókamarkaður.is
©2012 skiptibókamarkaður.is