Leiðbeiningar
Viltu selja bók?
- Þú byrjar á því að leita annaðhvort eftir flokkum (vinstra megin á síðunni) eða notar leitartakkann (uppi hægra megin) og getur þá séð hvort einhver er að óska eftir þessari tilteknu bók. Ef þér líst vel á einhvern sem er að óska eftir bók getur þú haft samband við viðkomandi og reynt að selja honum bókina. Þú hefur samband með því að klikka á viðkomandi bók, velur þér síðan þann notanda sem þér líst best á. Klikkar á tengilinn „hafa samband við seljanda“ og sendir honum annaðhvort tölvupóst eða hringir í hann. Nánari leiðbeiningar eru hér fyrir neðan undir liðnum Aðgerðir.
- Ef þú hefur ekki fundið neinn sem óskar eftir viðkomandi bók þá getur þú skráð þig inn á síðuna og ýtt á hnappinn Selja bók. Nánari leiðbeiningar eru hér fyrir neðan undir liðnum Aðgerðir.
Vantar
þig bók?
- Þú byrjar á því að leita annaðhvort eftir flokkum (vinstra megin á síðunni) eða notar leitartakkann (uppi hægra megin) og getur þá séð hvort einhver er með þessara tilteknu bók til sölu. Ef þér líst vel á einhvern söluaðilann getur þú haft samband við viðkomandi og reynt að kaupa hana af honum. Þú hefur samband með því að klikka á viðkomandi bók, velur þér síðan þann notanda sem þér líst best á. Klikkar á tengilinn „hafa samband við seljanda“ og sendir honum annaðhvort tölvupóst eða hringir í hann. Nánari leiðbeiningar eru hér fyrir neðan undir liðnum Aðgerðir.
- Ef þú hefur ekki fundið neinn sem óskar eftir viðkomandi bók þá getur þú skráð þig inn á síðuna og ýtt á hnappinn Óska eftir bók. Nánari leiðbeiningar eru hér fyrir neðan undir liðnum Aðgerðir.
Aðgerðir
Skrá
nýjan notanda
- Klikkar á takkann skrá nýjan notanda.
- Skrifar viðeigandi upplýsingar inn í reitina.
- Lest skilmálana.
- Ýtir á takkann skrá.
Innskráning
- Klikkar á takkann innskráning.
- Skráir inn tölvupóstfang og lykilorð.
- Ýtir á skrá inn.
Skrá
bók til sölu / óska eftir
- Ýtir á hnappinn Selja bók eða Óska eftir bók.
- Finnur ISBN númer bókarinnar og skráir það inn. Nánari upplýsingar um ISBN númerið eru á síðunni. Ef ekkert ISBN númer er á bókinni ýtirðu á áfram takkann og skráir upplýsingar um bókina handvirkt inn.
- Ef bókin er ekki skráð í réttan flokk geturðu bætt við öðrum flokki. Ef bókin er skráð í vitlausan flokk endilega láttu okkur vita.
- Skráir inn verð og ástand bókar. Ef þú hefur einhverjar athugasemdir þá seturðu þær með.
- Ýtir á skrá og bókin er kominn inn.
Leita að
ákveðinni bók
- Hægt er að velja tvær leiðir:
- Nota leitarhnappinn og setja þar inn t.d. ISBN númer bókar, titil, nafn höfundar og svo framvegis. Einnig er hægt að setja inn hluta úr orði. T.d. ef econ í staðinn fyrir economics. Þá kæmu upp allar bækur sem hefðu econ í titli, nafni á höfundi og svo framvegis.
- Nota flokkaleitina. Flokkaleitin er vinstra megin á síðunni. Valin er skóli og síðan námsgrein. Þá koma upp allar bækur sem skráðar eru í viðkomandi flokk. Ef hins vegar sama bók er til sölu í öðrum skólum þá koma þær bækur einnig upp ef klikkað er á viðkomandi bók.
Eyða bók
- Skrá sig inn
- Fara í mínar bækur
- Klikka á þá bók sem á að eyða.
- Ýta á eyða hnappinn og bókinni hefur verið eytt.
Leiðbeiningar Bakhjarlar Um okkur Auglýsingar Skilmálar Gleymt lykilorð?
©2012 skiptibókamarkaður.is
©2012 skiptibókamarkaður.is