Vefsíðan www.skiptibokamarkadur.is var stofnuð þann 10.ágúst 2009. Viðtökur hafa verið góðar frá því síðan fór í loftið og eru innskráðir notendur orðnir á fimmta þúsund.
Hugmyndin að síðunni kviknaði í kjölfar bankahrunsins þegar ljóst var að verð á bókum mundi hækka töluvert og því getur munað umtalsverðum fjármunum að kaupa bækurnar notaðar þegar því verður komið við. Í framhaldinu var síðan hafist handa við að búa til síðuna skiptibokamarkadur.is þar sem nemar geta milliliðalaust óskað eftir, eða auglýst eftir notuðum bókum. Þjónustan stendur notendum til boða að kostnaðarlausu. Síðan er alfarið fjármögnuð með auglýsingatekjum.
Þeir sem vilja selja/óska eftir bók skrá sig inn á síðuna og geta síðan skráð viðkomandi bók í framhaldinu. Þeir notendur sem eru að leita sér að bók geta annaðhvort valið bókina eftir því hvaða skóla og fagi bókin er skráð í, eða þá einfaldlega notað leitarhnappinn og sett inn t.d. titil á bók eða höfund.
Hvergi sá um hönnun vefsins og alla forritunarvinnu.
Umsjónarmaður vefsíðunnar er Vignir Már Lýðsson. Hafir þú einhverjar ábendingar er varða síðuna, er þér velkomið að hafa samband hér.
©2012 skiptibókamarkaður.is